Jamm og já ....

og svo á að spara með 1 klst. á leikskólum ! :)   Sparnaður og tóm leiðindi upp á ca. 4 milljónir !

Hvað eru það mörg % af hinu ásættanlegu veltufé frá rekstri :)


mbl.is Rúmlega 5 milljarða tap á rekstri Akureyrarbæjar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á 21. öldinn eða .... ?

Hvers vegna þurfa vaxtaákvarðanir að vera teknar með sléttum mánaðabilum,  er það í lögum eða reglugerð ?   Við búum við tölvutækni, sem sýnir stöðuna dag hvern.   Nánast er búið að leggja gömlu reiknivélunum.   Af hverju má ekki breyta vöxtum á 2ja  eða 3ja vikna tímabili ?

Skynja þessir menn  ekki umhverfið  ?    Lærðir sem leikir, öll hagsmunasamtök, sem hafa tjáð sig, eru á allt annarri skoðun um vaxtalækkunina núna.  Hvernig má það vera ?

 

Er farinn að hallast að þeirri skoðun margra, að það er AGS, sem stýrir vöxtum.   Ef svo er, af hverju kemur það ekki bara fram ?

 

Tæki ég ákvörðun, sem snerti t.d. heilt íbúðahverfi í London upp á ca. 320.000 íbúa, og allir væru sammála um að vera á móti, segði ég daginn eftir :  ÚPS,  breytum þessu eftir 3 daga.

 

Tek undir með öðrum, að fréttir um skuldir, vekja fleiri spurningar en svör.   Hverji eru þessir aðilar, sem skulda ?

 

 

 

 

 


mbl.is Umtalsverð vaxtalækkun í júní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitlaust reiknað eða gefið ?

Kasta hér fram nokkrum tölum, í fljótheitum, verð þá bara leiðréttur ef fingurbrjótur er í gangi eða  eitthvað  rangt !

 

Sparnaður í launakostn. upp á 10-12 milljónir hljóta að vera laun og launatengd gjöld,  gefum okkur því að lækkun tekna starfsm. séu þá 7 milljónir. M.v.  13% útsvar er lækkun útsvarstekna bæjarins  þá ca. 900.000  (að því gefnu að starfsm.  afli ekki tekna með öðrum hætti.

 

Skil ekki í fréttinni þetta með börnin 15 !  Skv. ársskýrslu 2007 (fann ekki nýrri) voru 1.048 börn á leikskólum,  a.m.k. 230 börn fædd 2007 bætast við, og vantar þá börn fædd 2006, segjum 200.

 

Hér er þá um að ræða 1.478 börn, þar af 6 - 7%, sem ekki nýta síðastu klst. eða ca. 90 börn, og foreldri/foreldrar.  

 

Skv. ársreikningi 2008 voru skatttekjur bæjarins pr. íbúa kr. 383.000.  eða kr. 34.470.00 vegna 90 manns.

Ef foreldri verður af ca. 10% tekna, (vegna 1 klst.)  lækka útsvarstekjur um 3.447.000 og starfsmanna um 900.000 eða samtals kr. 4.347.00 í lækkun útsvarstekna bæjarins.

Ennfremur mætti alveg gera ráð fyrir að e-r hluti fólks hafi ekki um það að velja að lækka starfshlutfall um 10 %, hvað gerist þá ?

 

Með samdrætti  leikskólanna fækkar ennfremur afleiddum störfum vegna rekstrar þeirra. 

 

Við lækkun á ráðstöfunartekjum þessara  heimila minnka t.d. neysla og eyðsla og velta  í vöru og þjónustu fyrirtækja og tekjur þeirra þar með.   Ekki er auðvelt að reikna þetta dæmi til enda.  Miðað við  sparnað bæjarins og lækkun útsvarstekna á móti skilur nú ekki mikið á milli í hlutfalli af veltu hans. 

  Þetta eru bara smáaurar, sem vel mætti finna annars staðar t.d. í stjórnkerfinu.      Hlýtur að vera farsælla en að setja heimili í uppnám, og skapa tóm leiðindi.

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Opið skemur og 10-12 milljónir sparast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og tímakaupið ca. ?

Eigum við að gefa okkur að stjórnarfundir séu haldnir einu sinni í viku (sem er trúlega of í lagt) og standi í ca. 2 tíma?  Það gera 8 tímar á mánuði.  Stj.formaður er þá með u.þ.b. 37.500 í laun á tímann.   Hann gæti að sjálfsögðu þurft að sinna störfum utan funda,  en félag með milljarða í tap, ætti nú sýna andlitið með öðrum hætti.  
mbl.is Ný stjórn TM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætlar Steingrímur

að fara í stjórn með taugaveikluðu liði ?  Ekki boðar þessi yfirlýsing, frekar en aðrar, góð fyrirheit.  Gott út af fyrir sig að Grímur skuli vera hugsi.  
mbl.is Áherslan á ESB lýsir taugaveiklun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú skjöplast fræðingnum !

Kannanir undanfarna daga, m.a. þær, sem birtar eru í dag, voru gerðar áður en:   Össur bakkaði með Bakka.  Steingrímur vildi þjóðnýta Icelandair.  Fjárm.ráðuneytið leiðrétti, ekki Grímur sjálfur.  Treglega gekk að toga út úr honum álit á olíuleit.   Ásta Ragnheiður tók milljarð úr Framkvf.sjóði aldraðra, 14 mínútum fyrir kosningar, og var ekki á atkv.veiðum ! :)  Kolbrún vill ekki olíuleit,  VG leiðrétti. Sigmundur bullaði sig trúlega út af þingi, um hluti, sem ekki eru uppi á borðum.  Viðsk.ráðherra leiðrétti. 

Rithöfundarnir fara trúlega langt á óánægjufylginu. 

Hér hafa menn talað út og suður og norður og niður. 


mbl.is Sögulegar kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað skyldu ..

vera margar stafsetningarvillur í þessari frétt ?   Nenni ekki að telja, en best er þó í lokin:  25. mars s.l.    :)
mbl.is Frönsk siðanefnd íhugaði afsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hilmar Sigurðsson

Höfundur

Hilmar Sigurðsson
Hilmar Sigurðsson
Viðskiptafræðingur, en tek mest mark á því, sem amma mín kenndi mér (f. fyrir aldamótin 1900).  

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 139

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband