Færsluflokkur: Bloggar

Svona eiga sýslumenn að vera !

Hanka snærisþjófana fyrst !   Aðrir koma svo bara í rólegheitunum á eftir, ef þeir finnast.
mbl.is Í fangelsi fyrir að stela nautalundum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÚPS Jóhanna !

Skv. fyrisögninni hélt ég að þú værir að biðja öryrkja og eldri borgara afsökunar á að hafa haft af þeim stórfé fá 1. júlí.   Þvert á allar yfirlýsingar þínar og markmið um bættan hag hinna sömu um áratugaskeið.     E....n af  því að kjör þeirra höfðu óvart verið leiðrétt um einhverjar krónur, þá þurfti að ná í þær aftur og jafnvel gott betur !   Hvað eiga viðkomandi að gera við sínar fjárhagsáætlanir, þegar tekjur skerðast  t.d. um kr. 200.000 ári !   Borða minna, snyrta sig sjaldnar?  Þú hefur alvarlega brugðist "þínu" fólki.  Þinn tími hefði betur aldrei komið !    Enda er honum að ljúka !  Fjárlögin eru opin í báða enda.   Jafnvel með röngum tölum sbr. RUV.   Tekjuskattur skal hækkaður, en hvernig og af hvaða tekjum? Þetta hefur bara ekki verið sett inn í frumvarpið, heldur á eftir að "útfæra" það !


mbl.is Biður þjóðina afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og á Hrauninu í den...

Sú gamansaga var lengi í gangi fyrir e.t.v. 30-40 árum þegar flóttar fanga af Litla Hrauni voru nokkuð tíðir, og voru næstum í beinni útsendingu á  gufunni,   að fyrirmæli fangelsisyfirvalda voru þau að "ef þið eruð ekki komnir inn fyrir kl. 23.00 verður hliðinu lokað" !   :) :)
mbl.is Þekktur glæpamaður handtekinn á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhlaup

á Nýja Kaupþing strax í gegnum heimabanka og ekki seinna en á þriðjudag, færa allt laust fé þaðan í burtu.
mbl.is Netverjar æfir yfir lögbanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er dulítið skotinn í

hugmynd Borgfirðinga, sem fram kom í Skessuhorni um daginn, að gera Veiðilæk í Norðurárdal að minjasafni um 2008.   Í rauninni bara frábær !

Annars er fram komin önnur hugmynd, ekki síðri:   Veiðilækur verði gerður að skuldafangelsi.

Ætti að rúma vel ca. 30 manns.    Fangar verði settir í grjótnám í nágrenninu til þess að vinna upp í skuldir þjóðarinnar.   Gera þarf góða aðstöðu fyrir ferðamenn.

 

 


Moggi plíís !

Hvers vegna takið þið við "áliti" prófessorsins athugasemdalaust og í gegnum RUV ?    Er engin vilji eða metnaður til þess að koma á framfæri eðlilegri umræðu eða "frétt"  af ykkar hálfu ?    Agnes ! skora á þig að skoða svona "álit"  !!

 

Mætti ég vinsaml. biðja ykkur um að vinna betur úr svona "álitum"  ?

 


Úps, bíddu nú við ?

Í 1. lagi er ekkert vitað um eignir bankans.   Hvaða upplýsingar hefur prófessorinn um þær, sem hann byggir á að gera "ráð fyrir" að 10 - 25 % gangi upp í skuldina eða að hámarki 160 milljarða?

Í 2. lagi sýnist mér að samningurinn geri ráð fyrir þvi að vextir hvers árs bætist við höfuðstólinn.  Skv. því er skuldin eftir 1 ár 686 milljarðar og eftir 2 ár 724 milljarðar og eftir 6 ár 897  milljarðar !!!   Gerir prófessorinn ráð fyrir að 160 milljarðarnir gangi upp í 650 milljarðana eða upp í  tæpl. 900 milljarða ? 

Í 3. lagi hvaða reikningskúnstir standa á bak við það að bera saman lokun álvera ?    Liggja þessar tölur fyrir ?  Held ekki.   Burt séð frá orkuverði, þá er talið að hvert starf í álveri hafi í för með sér þrjú afleidd störf í þjónustu o.fl. við álverin.   Er prófessorinn með tölur á reiðum höndum um það hvað það eitt kostar að loka álveri í e-n tíma og koma því í gang aftur ?    

Í 4. lagi tel ég að prófessorinn sé í "pólitík" en ekki hagfræði, allavega benda yfirlýsingar án rökstuðnings og talna til  þess !! 

 

 

 

 


mbl.is Slökkt á álveri og virkjun í átta ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hilmar Sigurðsson

Höfundur

Hilmar Sigurðsson
Hilmar Sigurðsson
Viðskiptafræðingur, en tek mest mark á því, sem amma mín kenndi mér (f. fyrir aldamótin 1900).  

Færsluflokkar

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband