Man ekki í fljótu bragði eftir svona

yfirlýsingu frá forsvarsmanni í íþróttum.  Leikir tapaðir fyrirfram.  Sá á eftir að fá að heyra það :)  Neee.....ma vera skyldi að hér sé um að ræða stórkostlega sálfræði, efast um það, vanir menn eins og hjá AG falla ekki í þá gryfjuna.  


mbl.is Sävehof: Eigum enga möguleika gegn AG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir Landann !

Þessi frétt var að vísu birt ca. 17:50 í dag, e....n ég hef alltaf staðið í þeirri trú frá barnsaldri, fyrir ca. 55 árum síðan, sem kúareki, að kýr væru ekkert sérstaklega vel gefnar.  Eftir meðf. sjónvarpsþátt úr Landanum á RUV í kvöld, myndskeið 23mín : 00 kemur allt annað í ljós :)  Og vaknar þá spurningin hvort fjölga skuli kyni kúa eða bænda?  Ég held með kúnum og fækka skuli bændum :) http://ruv.is/sarpurinn/landinn/12022012  Þessi þáttur er algjör snilld !
mbl.is Vilja nýtt kúakyn til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sultuslakur yfir Birni Val...

Það er ekki orð að marka manninn.  Hinu hef ég meiri áhyggjur af, og það er hvernig RUV matreiðir fréttaefnið.  Aðeins var rætt við Björn einan !  Hvers vegna var enginn frá stjórnarandstöðu tekinn tali?
mbl.is Frávísunartillaga lögð fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En Ögmundur?

Hann er nú heldur betur en ekki í Morgunblaðinu í dag?  Er hann þá einn af sótröftunum?

Og eru þá ótaldir öryrkjarnir !

Það sama á nefnilega við um þá, frekar fáa þó (nokkur hundruð), sem þýðir einungis að þessi fásinna um tengingu greiðsla úr lífeyrissjóðum við TR frá 1. júlí 2009 hefur engin afgerandi áhrif á ríkissjóð, einungis á öryrkjana.  Ekki nóg með það, heldur hitt, að þegar gerðir voru kjarasamningar með % hækkunum og eingreiðslum fengu þeir að sjálfsögðu kr. 0.- þar sem e-r % af 0.- er núll !
Ennfremur engar eingreiðslur, því þeir höfðu ekki fengið greiðslur frá TR þegar samið var !  Og þessi ósvinna er í boði "velferðarstjórnarinnar" !

mbl.is Margir fá ekkert frá TR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þjóðarbúið er of dýrt í rekstri"...

er fyrirsögn greinar eftir Styrmi Gunnarsson í síðasta sunnudagsMogga.  Er stundum sammála honum, en núna næstum alveg. Þar sem greinin er "læst" hjá Mogga tek ég mér bessaleyfi og kem á framfæri nokkrum atriðum úr henni (skora á sem flesta að lesa hana).   Að vísu sýnist mér hann vitna í "athafnamann af nýrri kynslóð Íslendinga" þannig að ekki er alveg klárt að skoðanir séu Styrmis, en reikna þó með að svo sé, skiptir í raun ekki máli.

Hef um árabil nefnilega verið að japla á þessu sama efni við þá, sem nenna að hlusta mig. Einkum hafði ég áhyggjur af öllum þessum byggingakrönum hér um árið, ekki bara hér á landi, heldur erlendis líka.

Of margir bankar og útibú (a.m.k. á höfuðb.svæðinu).  Útibú flestra stundum á sömu torfunni !  T.d. í Kópavogi við Hamraborg á ca. 2.000 fermetrum:  Íslandsbanki, Landsbanki og Byr ! (Og Arion á Smáratorgi).  Skyldu þeir ekki vera búnir að átta sig á því að stór hluti þjóðarinnar er kominn með heimabanka?  Húsnæði þeirra eru yfirleitt ekkert slor.

Of margar benzínstöðvar og of mikið í þær lagt. Tökum aftur dæmi úr Kópavogi:  N1, Orkan og Atlantsolía á sömu torfunni, ca. 1.000 fermetrum. Sumar opnar allan sólarhringinn.  Til hvers?   Við getum afgreitt okkur sjálf.  Margar hverjar eru orðnar eins og veitingastaðir og smásöluverzlanir. Hvaða áhrif hefur þetta á eldsneytisverð?  Til lækkunar eða.... hvað?

"Hópun" fyrirtækja í sömu grein er svo sum viðurkennd í markaðsfræðum.  Minna má á t.d. allar húsgagnaverzlanirnar á Grensásvegi og nágrenni  í R.vík fyrir mörgum árum. Viðskiptavinir gátu gengið á milli á litlu svæði og borið saman verð og gæði o.s.frv.    E....n þar ríkti samkeppni ! 

Of margar matvöruverzlanir á of fáum fermetrum.  Til hvers að vera með opið allan sólarhringinn hjá svo mörgum?  Kemur fram í of háu vöruverði.

Of mörg bílaumboð að selja of fá bíla. 

Of mörg sveitarfélög.  T.d. á höfuðb.svæðinu myndu ca. 2 nægja, hugsanlega bara eitt.   Jafnvel eitt sveitarfélag á svæði, sem orðið er eitt atvinnusvæði, þ.e. frá Árborg í austri til Borgarbyggðar og Reykjanes með talið. E...n ef þetta er fært í tal  fara allir "smá kóngarnir" og embættismennirnir upp á afturlappirnar og hafna slíkum hugmyndum.  Þeir missa nefnilega spóna úr öskum sínum.  Hugsið ykkur allar nefndirnar í öllum sveitarfélögum, fjölda bæjarfulltrúa, nefndarmanna o.s.frv. sem hægt væri að fækka og spara útgjöldin og þar með lækka útsvarið !

Utanríkisþjónustan er náttúrulega bara hlægileg, m.v. nýjustu tækni í samskiptum.  Höfum ekkert að gera með öll þessi sendiráð og þann flottræfilshátt, sem þeim fylgir.   Herrabústaðir og móttökusalir í húsum í "fínum" hverfum erlendis er einungis gamaldags hugsun og úreld.  Fækkun þeirra er lækkun skatta!  

Okkur hinum hagsýnu húsmæðrum og feðrum þykir þetta vera allt frekar augljóst en hvers vegna ekki bæði einkafyrirtækjum og  stjórnvöldum?  Þetta eru engin geimvísindi !

 


"Ljótu hálfvitarnir"...

Var nú ekki hægt að bíða í nokkra tíma með svona yfirlýsingar. Gæti hæglega

truflað vöflubaksturinn !


mbl.is Heldur miklar launahækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn brandarinn enn....

Fyrir mælaálestur mun ég og mín fjölskylda taka 4 klst. í útkallsvinnu á tímakaupi  Gnarrtrúðsins. Gott að fá svona matarholur upp úr engu. 
mbl.is Hafa ekki áhyggjur af svindli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öfugmælavísur....

Hef alltaf haft gaman af öfugmælavísum :) Váá þessi er með þeim betri, þó vanti alla ljóðstafi og annað, sem gleður. Stjórnin, sem er búin að vera að berjast með Bretum og Hollendingum gegn Íslendingum, telur sig best fallna til þess að halda uppi vörnum :) Þetta er svo fáranlegt að ekki tekur nokkru tali, frekar en annað, sem frá þeim kemur.
mbl.is Óvíst hvort kjósa þyrfti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hilmar Sigurðsson

Höfundur

Hilmar Sigurðsson
Hilmar Sigurðsson
Viðskiptafræðingur, en tek mest mark á því, sem amma mín kenndi mér (f. fyrir aldamótin 1900).  

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband